Morgunfrúarsmyrsli 85 gr.

Morgunfrúarsmyrsli 85 gr.

Venjulegt verð 6.740 kr

Græðandi og sveppadrepandi smyrsli.

Milt en áhrifamikið alhliða smyrsli sem hentar öllum aldri, frábært á ungbarnabossann og aumar geirvörtur í brjóstagjöf og má nota alls staðar, nálægt augum og í slímhúð. Smyrslið er vírus- og bakteríudrepandi og einnig gott gegn sveppum, hvort sem er á tám, húðfellingum eða á kynfærum. Þetta má einnig nota upp í munn á ungbörnum með þrusku eða upp í leggöng. Gott á exem og þurra húð.

Innihald:
Bývax (Cera flava) - Er rakagefandi, sótthreinsandi, vítamínríkt og kemur í veg fyrir að húðin tapi raka án þess að loka henni.
Kakósmjör (Theobroma cacao) - Er rakagefandi, næringaríkt, græðandi og inniheldur mikið af andoxunarefnum.
Shea smjör (Butyrospermum parkii) - Er mjög græðandi, bólgueyðandi, nærandi og rakagefandi.
Morgunfrúarolía (Calendula officinalis) - Er bólgueyðandi, sótthreinsandi og róandi.

Notkun: Berist á húð eða slímhúð eftir þörfum.


Deila þessari vöru


Meira úr þessum vöruflokki