Kamillute 50 gr. - Jurtaapótek
Kamillute 50 gr. - Jurtaapótek
Kamilla er mjög mild og góð jurt sem hentar líka vel fyrir börn. Hún er krampastillandi, róandi, vindeyðandi og virkar vel á börn sem eru með óróleika í maga. Kamilla er mjög góð lækningajurt gegn allskyns vandamálum í meltingu. Hún er góð við hvers kyns bólgum í meltingarvegi og virkar einnig græðandi á alla slímhúð í meltingarveginum. Kamillan getur því gagnast vel við t.d. magabólgu og ristilbólgu og einnig getur hún hjálpað mjög vel gegn spennu sem safnast hefur fyrir í meltingunni.
Það er hægt að nota Kamillu við frjóofnæmi og astma og er það virka efnið Pro Azulene sem er í jurtinni sem er að hjálpa gegn ofnæmi. Útvortis er hún góð á kláða og exem.
Virk efni: M.a. flavanóíðar, flavóníðar, terpenar, kúmarín og terpenóíðar.
Leiðbeiningar:
Setjið eina tsk í bolla af soðnu vatni, látið standa í 15 mínútur. Má drekka þrisvar sinnum á dag.
Umbúðir: Pappírspoki með járnspennu.
Framleitt af Jurtaapótekinu