Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Yuzu ilmkjarnaolía, 5 ml. - Amphora Aromatics

Yuzu ilmkjarnaolía, 5 ml. - Amphora Aromatics

Verð 6,690 kr
Verð 0 kr Söluverð 6,690 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Yuzu (Citrus Junos)

Sætur sítrusilmur

Yuzu olían er stútfull af C-vítamíni og er afar vinsæl til notkunar í húðvörur sem eiga að lýsa upp húðtóninn, en hún styrkir einnig húðina og hjálpar til við að vinna gegn einkennum öldrunar.

Yuzu ilmkjarnaolíunni svipar um margt til Bergamot olíu hvað varðar eiginleika. Hún er með dásamlegan sætan sítrusilm sem er upplífgandi og færir gleðitilfinningu. Nokkrir dropar í ilmolíudreifara eða í lófann til innöndunar geta hjálpað með kvíða, skammdegisþunglyndi og dregið úr taugaóstyrk. Yuzu hefur einnig bakterudrepandi eiginleika

Olían er unnin með kaldpressun úr berkinum og er hátóna.

Notkun:  Hægt að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. Einnig má setja dropa af olíunni í lófann og anda að sér ilminum.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Japan

Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa

Sjá allar upplýsingar