Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Vetiver ilmkjarnaolía, 10 ml. - Amphora Aromatics

Vetiver ilmkjarnaolía, 10 ml. - Amphora Aromatics

Verð 5.250 kr
Verð Söluverð 5.250 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Vetiveria zizanioides (Chrysopogon zizanioides).
Djúpur jarðarilmur með sætum og reykkenndum undirtón. Þessi olía er best þekkt á Indlandi og Sri Lanka sem slakandi og róandi eiginleika sína en hefur einnig verið notuð sem ilmvatn á Indlandi. Vetiver er mikið notuð í ilmvötn, sérstaklega í herrailmi.
Vetiver getur gagnast vel við svefnleysi, gott er að setja nokkra dropa í kvöld baðið (blandað í salt eða grunnolíu) til að draga úr streitu og ná slökun fyrir nóttina.  Vetiver getur líka gagnast vel í nuddolíu til að draga úr andlegri og líkamlegri þreytu og eins til að vinna á liðverkjum eða gigtarverkjum. Nokkrir dropar í húðkremið geta hjálpað gegn þurrki og pirringi í húð. Vetiver er almennt góð olía fyrir húðina, bæði nærandi og styrkjandi en er einnig góð fyrir vöðva.

Unnið með gufueimingu úr þurrkaðri Vetiver rót og er lágtóna.
Olían blandast vel með ýmsum viðar, blóma og sítrus olíum, m.a. sandalvið, geranium, sedrusvið, bergamot, jasmín, lavender, clary sage, patchouli og appelsínu.

Notkun:
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Indónesía.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)

Sjá allar upplýsingar