Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Undrajurtir

Verma, tinktúra úr íslenskri hvannarrót, 50 ml - Undrajurtir

Verma, tinktúra úr íslenskri hvannarrót, 50 ml - Undrajurtir

Verð 6.195 kr
Verð Söluverð 6.195 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Melting - öndunarfæri - náttúrulegur styrkur

Hvönn á sér langa og ríka sögu í íslenskri menningu og alþýðufræðum sem öflug heilsujurt. Í tímans rás hefur hún jafnan verið nýtt til þess að styðja við meltinguna og stuðla að jafnvægi í meltingarveginum. Hvannarrótin er sömuleiðis þekkt fyrir að vera nærandi og mýkjandi fyrir öndunarfærin og er talin efla náttúrulegar varnir líkamans. Þessi kröftuga íslenska jurt er frábær ábót inn í daginn til þess að styrkja almennt líkamlegt þrek og viðhalda góðri vellíðan.

Innihaldslýsing:
Vatn, alkóhól, Hvannarrót (Angelica archangelica radix).

Notkun:  Takið 20-40 dropa tvisvar til þrisvar sinnum á dag út í vatn eða annan vökva. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Ef þú ert barnshafandi, með barn á brjósti eða á lyfjum, endilega hafðu samband við lækni eða grasalækni fyrir notkun.

Ekki æskilegt fyrir börn

ATH: varan inniheldur áfengi

Geymist á dimmum og svölum stað, þar sem börn ná ekki til. 

Fæðubótarefni eru ætluð sem viðbót og koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og lífsstíl.
Þessi vara er ekki ætluð til að fyrirbyggja, vinna á eða lækna sjúkdóma.

Umbúðir: Glerflaska með pípettu.

Framleitt af Ingeborg Andersen grasalækni/Undrajurtir

Sjá allar upplýsingar