Viridian
Trönuber og D-mannose - Viridian
Trönuber og D-mannose - Viridian
Því miður ekki til á lager
Einstaklega góð, bakteríudrepandi blanda af stöðluðu trönuberjaþykkni (30% proanthocyanidins) og D-mannose sem er ætluð til að meðhöndla þvagfærasýkingu/blöðrubólgu. Blandan byrjar að virka u.þ.b. innan klukkustundar eftir inntöku.
Proanthocyanidin eru líffræðilega virkir flavoníðar sem eru hluti af varnarkerfi plantna og ávaxta. D-mannose í þessari blöndu er framleiddur úr óerfðabreyttum (non GMO) maís.
Að minnsta kosti 90% af inntöku D-mannósa frásogast í efri hluta þarmanna og skilst út óbreytt í gegnum nýrun um klukkustund eftir inntöku og nýtist þá í þvagfærunum.
Glasið inniheldur 30 hylki og er u.þ.b. viku meðferðarskammtur.
Innihald í einu hylki:
D-Mannose 500mg
Trönuber (Oxycoccus spp.) þykkni (30% proanthocyanidins) 60mg
Í grunni Alfalfa, Spirulina og aðalbláberja
Jurtahylki
Engin aukaefni, bindiefni né fylliefni, aðeins 100% virk innihaldsefni.
Notkun:
Takið tvö hylki tvisvar á dag með mat. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Ef barnshafandi eða með barn á brjósti, ráðfærið ykkur við lækni eða hjúkrunarfræðing fyrir notkun.
Umbúðir: Glerkrukka og állok.
Framleitt í Bretlandi.
Geymið þar sem börn ná og sjá ekki til.
Fæðubótarefni eru ætluð sem viðbót og koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og lífsstíl.
Þessi vara er ekki ætluð til að fyrirbyggja, vinna á eða lækna sjúkdóma.
Deila vöru
