Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 3

Viridian

Triphala, lífrænt 60 hylki - Fushi

Triphala, lífrænt 60 hylki - Fushi

Verð 4.630 kr
Verð Söluverð 4.630 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Triphala er ayurvedísk jurtablanda sem samanstendur af þremur mismunandi jurtum:

Amla (Emblica officinalis)*, Bibhitaki (Terminalia belerica)* og Haritaki (Terminalia chebula)*.
*Lífrænt vottað af UK Soil Association.

Þessi blanda jafnar allar doshurnar þrjár, vata, pitta og kapha. Hún er einstaklega góð fyrir meltinguna og getur komið jafnvægi á hana ásamt því að stuðla að jafnvægi á efnaskiptum líkamans og hjálpa til við að styrkja öll hreinsikerfi hans. 
Hún getur stuðlað að lækkun kólesteróls í blóði, er talin vera bólgueyðandi, krampastillandi, andoxandi og bakteríudrepandi, getur stuðlað að sterkara ónæmiskerfi og  bættri sjón,  er talin geta lækkað blóðþrýsting, aukið blóðflæði og er næringarrík.
Blandan er framleidd úr nýmöluðum jurtum frá uppskeru þessa árs.
Hylkin eru úr jurtabeðmi.

Leiðbeiningar: Takið tvö hylki á dag (eitt á morgnana og eitt á kvöldin). Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Gott er að taka Triphala inn í allt að 90 daga og taka svo hlé í tvær vikur.

Triphala inniheldur eftirfarandi bragð/brögð:
Súrt
Sterkt
Beiskt
Samandragandi
Sætt

Upprunaland: Indland.
Umbúðir: Glerkrukka og plasttappi.

Geymið þar sem börn ná og sjá ekki til.
Fæðubótarefni eru ætluð sem viðbót og koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og lífsstíl.
Þessi vara er ekki ætluð til að fyrirbyggja, vinna á eða lækna sjúkdóma.

Sjá allar upplýsingar