Undrajurtir
Tólg húðkrem m/birki og ösp, 50 g - Undrajurtir
Tólg húðkrem m/birki og ösp, 50 g - Undrajurtir
Því miður ekki til á lager
TÓLG er alhliða og djúp húðnæring úr þeyttri nautafitu og íslenskum jurtum. Nautafitan er úr íslenskum grasfóðruðum nautum og er náttúrulega rík af A, D, K og E vítamínum. Þar sem dýrafita er svipuð okkar eigin húðfitu þá smýgur hún einstaklega vel inn í húðina og virkar vel á allar húðtegundir. Í húðkreminu er einnig örlítið af mct olíu (fljótandi kókosolíu) til þess að skapa mýkri áferð. Engar fræ eða hnetu olíur eru notaðar og engar ilmkjarnaolíur, en ilmurinn kemur úr jurtunum sjálfum.
Notkun: Notist sem andlits eða líkams krem fyrir fullorðna og börn. Má nota á útbrot, ör, bólur, sár, exem og fleira. Athugið að áferð húðkemsins getur breyst við mismunandi hitastig.
Varist notkun ef um trjá- eða jurta ofnæmi er að ræða.
Öspin gefur græðandi, bólgueyðandi og verndandi eiginleika. Asparbrumin, sem eru tínd snemma á vorin, innihalda náttúrulegar olíur sem gefa kreminu dásamlegan ilm ásamt því að veita græðandi, bólgueyðandi og verndandi eiginleika.
Innihaldsefni: Grasfóðruð íslensk nautatólg, mct olía,(fljótandi kókosolía), íslenskar jurtir: ösp (populus spp.), birki (betula pubescens).
Umbúðir: Glerkrukka og állok
Framleiðandi: Ingeborg Andersen grasalæknir/Undrajurtir
Deila vöru
