Þvottasódi 750 gr.
Þvottasódi 750 gr.
Þvottasódi er fjölþætt og öflugt hreinsiefni fyrir yfirborðsfleti og gólf á heimilinu ásamt þvotti. Kristallarnir/sódinn sem eru vatnsleysanlegur, hreinsar, fjarlægir lykt, leysir upp fitu og gerir sýru hlutlausa.
Hægt að nota til að:
- Fjarlægja fitu
- Þrífa mjög óhreint yfirborð og gólf
- Hreinsa stífluð rör
- Árangursríkt á bletti í fatnaði
- Eykur áhrif þvottaefnis
- Fjarlægir kalk
- Upprætir lykt
- Þrífa klósettskálar, baðkör og vaska
Þvottasódi er sérstaklega áhrifaríkur til að fjarlægja fitu, þrífa mjög óhrein yfirborð og gólf og losa stíflur í rörum og niðurföllum. Mýkingareiginleiki þess eykur skilvirkni hreinsiefna í þvottarefni og uppþvottarefni.
Framleitt í Bretlandi
750 gr.
Plastlausar og endurlokanlegar umbúðir úr kraftpappír með filmu að innan úr plöntumiðuðu efni. Jarðgerist í heimamoltu.
Varúð: Geymið þar sem börn ná ekki til. Notið hanska. Ef efnið berst í augu, skolið vel með vatni. Fjarlægið linsur ef notaðar. Þvoið hendur vandlega eftir notkun.
Notkun.
Eldhúsfletir eins og helluborð, ruslafötur, ofn, ísskápur. Leysið 200 gr. af þvottasóda upp í 500 ml. af vatni. Spreyjaðu eða strjúktu yfir flötinn með lausninni. Látið liggja á erfiðum blettum í eina til tvær mínútur og þurrkaðu síðan af með hreinum klút. NOTIST EKKI Á ÁLFLETI.
Feitar pönnur. Leysið 200 gr. af þvottasóda upp í 500 ml. af vatni. Látið pönnuna liggja í leginum í nokkrar klukkustundir og þurrkið af.
Þvottavélar: Þvoðu tóma vél á heitu prógrammi. Settu 500-750gr. af þvottasóda í þvottaefnishólfið.
Til að auka áhrif þvottaefnis er mælt með að setja tvær matskeiðar með þvottaefninu í þvottaefnishólfið.
Klósettþrif: Setjið um 300 gr. í skálina og í vatnið og látið liggja yfir nótt. Eyðir lykt og kalki. Skolið.
Stífluð rör: Hellið einum bolla af sódanum í niðurfall og skolið niður með heitu vatni.