Mistur
Amla sjampó í dufti, lífrænt 100 g - Eliah Sahil
Amla sjampó í dufti, lífrænt 100 g - Eliah Sahil
Því miður ekki til á lager
Sjampó í duftformi sem hreinsar hárið á einstakan hátt, án þess að innihalda ertandi yfirborðsvirk efni og róar þannig hársvörðinn. Hárið fær á sig náttúrulegan glans og verður mjúkt og þægilegt viðkomu. Hentar vel fyrir fíngert og venjulegt hár. Inniheldur meðal annars Amla sem gefur glans og fyllingu.
Notkunarleiðbeiningar: Nuddið einni til tveimur teskeiðum af dufti (fer eftir sídd hársins) í blautt hárið og skolið úr. Endurtakið síðan ferlið. Við fyrri þvottinn fara fita og óhreinindi úr hárinu og við seinni þvottinn myndast náttúruleg froða sem nærir hárið og hársvörðinn.
Innihald:
Fuller´s earth (Solum Fullonum)**, Shikaki duft (Acacia Concinna)*, Sápuberjaduft/sápuskeljar (Sapindus Mukorossi)*, Amla duft (Emblica Officinalis)*, Terminalia Bellirica duft*, Terminalia Chebula duft*, Aloe vera lauf (Aloe Barbadensis)*, Parfum**, Linalool***, Ho Wood ilmkjarnaolía(Cinnamomum Camphora Linalooliferum)**.
*úr lífrænni ræktun, **náttúrulegt, ***úr ilmkjarnaolíum
Þyngd: 100 g
Umbúðir: Endurunnin glerkrukka.
Upprunaland: Austurríki
Eliah Sahil - náttúrulegt · lífrænt vottað · vegan
Þegar maðurinn er í sátt við sjálfan sig lifir hann líka í sátt við náttúruna og hefur því tækifæri til að breyta þessum heimi í jákvæða átt. Eliah Sahil framleiðir vörur sem endurspegla hreinleika náttúrunnar. Allar vörurnar eru unnar úr hágæða jurtum, jurta- og blómadropum og steinefnum. Lífræna hráefnið er aðallega fengið frá smábændum í Indlandi og Afríku. Eliah Sahil metur líf allra lífvera og notar því hvorki afurðir úr dýrum né heldur eru vörurnar prófaðar á dýrum.
Zero Waste snyrtivörur
Eliah Sahil notar sellulósamerkingar úr nýstárlegu steindufti og prentbleki án jarðolíu, leysiefna og aukaefna. Þessar merkingar þurfa allt að 80% minna vatn við framleiðslu. Og það besta af öllu, það þarf ekki að höggva tré til að búa til þennan pappír. Álumbúðirnar og glerflöskurnar eru 100% endurvinnanlegar. Eingöngu er notað lífplast úr endurnýjanlegum sykurreyr, ekkert hefðbundið plast.
Deila vöru
