Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 2

Qwetch

Teflaska úr stáli, hörlituð, mött, 400 ml

Teflaska úr stáli, hörlituð, mött, 400 ml

Verð 5,790 kr
Verð 0 kr Söluverð 5,790 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

            

Qwetch stál tedrykkjarflaskan er hágæða vara með einstaka einangrun. 

Hér er á ferðinni 400 ml. lekaheld drykkjarflaska úr 90% endurunnu stáli og þéttu stálloki. Hentar sérstaklega vel fyrir þá sem vilja taka heitt te með sér og láta það lagast á meðan ferðast er. Þú ákveður hversu lengi þú lætur bragðgjafann liggja í flöskunni og notar til þess aðra hvora síuna, en tvær misstórar síur fylgja með. 

  • Áskrúfað stállok
  • Flaskan rúmar 300 ml.

Um vöruna

  • Innra og ytra lag úr stáli 304 (18/8)
  • Innra byrði án allrar húðunar og lakks (ólíkt álíláta)
  • Loft-, og lekaheld – silicon þéttir í loki
  • Kemur með tveimur síum úr ryðfríu stáli 304 (18/8) – grunn og djúp
  • Heldur heitu í allt að 12 klst. og köldu í allt að 24 klst.
  • Mikið viðnám gegn tæringu
  • Hefur ekki áhrif á bragðgæði
  • Stærð: 19 cm. á hæð og 6,9 cm. þvermál. Þvermál ops 6 cm.
  • Þyngd: 320 gr.

Notkun síu
Flöskunni fylgja tvær síur fyrir sitthvora síunaraðferðina allt eftir tegund drykkjarins, lengd síunnar og/eða smekk manna 

  • Lengri sían gefur styttri síunartíma eftir þörf hvers og eins þar sem auðvelt er að fjarlægja síuna með bragðgjafanum.
  • Með styttri síunni færðu langt og stöðugt innrennsli bragðgjafans, eins og kínversk hefð segir til um.

Notkunarleiðbeiningar:

  • Setjið hvorki í örbylgju- né bakarofn
  • Frystið ekki
  • Setjið ekki meira í flöskuna heldur en leiðbeiningar segja til um
  • Til að forðast leka, passið að skrúfa lokið rétt og þétt á 
  • Varist að börn leiki sér með flöskuna ef heitir drykkir eru í henni
  • Setjið ekki kolsýrða drykki í flöskuna þar sem þrýstingur getur margfaldast
  • Geymið ekki brjóstamjólk í flöskunni
  • Geymið flöskuna opna á milli notkunnar

Umhirða:

  • Þvoið alla hlutana með sápuvatni fyrir notkun. Skolið vel og þurrkið
  • Fyrir enn ítarlegri þrif mælum við með því að þvo ílátið með þvottabursta, heitu vatni og teskeið af matarsóda
  • Ef þurfa þykir, látið liggja í bleyti í nokkra klukkutíma fyrir skolun
  • Notið ekki þvottarefni sem innihalda bleikiefni, klór, fægilög (svarfefni) eða/og sterk hreinsiefni
  • Við mælum með handþvotti

Tillaga:

Til að drykkurinn haldist heitur sem lengst, fyllið ílátið með heitu vatni til að verma flöskuna að innan og látið standa í nokkrar mínútur. Tæmið ílátið og fyllið aftur með því sem halda á heitu.

Umbúðir: Þunn pappaaskja
Framleitt í Kína fyrir Qwetch sem er með B corp. vottun

Sjá allar upplýsingar