Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 2

Terra Gaia

Taubleyjur 1 stk natur - 75x75 cm. Terra Gaia

Taubleyjur 1 stk natur - 75x75 cm. Terra Gaia

Verð 1.195 kr
Verð 0 kr Söluverð 1.195 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Margnota taubleyjur úr lífrænni GOTS vottaðri bómull. Betra fyrir jörðina, betra fyrir barnið og betra fyrir fjárhaginn.

Hver er ávinningurinn af því að nota margnota taubleyjur?
Kaup á bleyjum er stór kostnaðarliður þegar barn kemur í heiminn. Meðal bleyjunotkun fyrsta árið er frá 2200 - 3000 bleyjur svo ekki einungis er það mun hagkvæmara að nota taubleyjur en einnig er sagt að það um 500 ár fyrir venjulega bleyju að brotna niður í landfyllingum út af ysta plastlaginu.  Einnig er betra fyrir viðkvæma húð barnsins að nota taubleyjur, þær eru mjúkar og draga vel í sig raka og eru síður líklegar til að valda ofnæmisviðbrögðum.

Bleyjurnar má líka nota til að vefja utan um barnið, leggja undir það þegar verið er að skipta um bleyju og leggja yfir öxlina þegar barnið þarf að ropa eða bara kúra.

Taubleyjurnar frá Terra Gaia eru gerðar úr lífrænt vottaðri bómull og þorna fljótt og vel eftir þvott.

Stærð: 75x75 cm
Efni: Tvöföld grisja úr lífrænni bómull.
Getur hlaupið í þvotti um ca 5%.

Framleiðsluland: Tékkland.

Umbúðalaust.

Hvað er GOTS vottun?
GOTS stendur fyrir Global Organic Textile Standard og síðan vottunin var kynnt árið 2006 hefur það verið leiðandi textílvinnslustaðall á heimsvísu fyrir framleiðslu á lífrænum þráðum. Þessi alhliða staðall nær yfir allt framleiðsluferlið allt frá hinni sjálfbæru, siðferðislega ábyrgu uppskeru á lífrænt ræktuðum plöntum til umhverfisvænnar og samfélagslega ábyrgrar framleiðslu og merkingar á vörunum.

Sjá allar upplýsingar