Amphora Aromatics
Svartur pipar ilmkjarnaolía lífræn,10 ml - Amphora Aromatics
Svartur pipar ilmkjarnaolía lífræn,10 ml - Amphora Aromatics
Því miður ekki til á lager
Svartur pipar - black pepper (Piper nigrum)
Vermandi og kryddaður ilmur sem jarðtengir, róar hugann og dregur úr streitu. Hún örvar blóðflæðið og er því frábær olía til að nota í nuddblöndur fyrir stoðkerfið, hvort sem það eru aumir vöðvar eða bólur og verkir í liðum. Einnig er gott að blanda henni með rósmarín ilmkjarnaolíu í sesamolíu grunn t.d. ef um fótkulda er að ræða.
Gegn slæmu kvefi má blanda henni saman við eucalyptus eða furu ilmkjarnaolíur í grunnolíu og nudda á bringu og bak.
Olían er unnin með gufueimingu úr piparkornum og er miðtóna.
Pipar olían (Black Pepper) blandast vel með mörgum öðrum olíum en sérstaklega vel með bergamot, greip, clary sage og frankincense.
Notkun:
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.
Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.
Uppruni: Indland.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)
Deila
