Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 3

ENSC

St.Clement´s whipped body butter

St.Clement´s whipped body butter

Verð 3.175 kr
Verð Söluverð 3.175 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Leyfðu þér dásamlegan lúxus með þessu létta líkamssmjöri með ilm sem minnir á sumarið.

Með St Clement´s líkamssmjörinu verður kroppurinn eins og eftir bestu dekurferð. Í líkamssmjörinu eru aðeins náttúruleg hráefni ásamt ilmkjarnaolíum sem gera húðina yndislega mjúka, slétta og næra hana vel. Líkamssmjörið ýtir undir virkni hinna dásamlegu ilmkjarnaolía sem eru í smjörinu. Léttur ilmur af sítrus með keim af sítrónugrasi og lime og hlýjum tónum af sætri appelsínu.

Sérfræðingar ENSC blönduðu hér saman lífrænu jómfrúar shea smjöri, kókosolíu, upprunavottaðari vistvænni pálmaolíu og bývaxi til að hjálpa til við að draga úr hrukkum og ójöfnum húðlit en um leið auka þéttleika húðarinnar, mýkt og teygjanleika. Límónu ilmkjarnaolían veitir vörn og gefur andoxunarefni og sæta appelsínan dregur úr bólgu og ertingu í húðinni.

Verndaðu og nærðu líkamann þinn með snert af lúxus og umvefðu þig dásamlegum ilm. Með notkun á St Clement´s þeytta líkamssmjörinu róarðu húðina, mýkir og eykur teygjanleika hennar.

  • Náttúruleg litarefni
  • Án rotvarnarefna og ilmolía 
  • Smýgur hratt inn í húðina
  • Mildur ilmur
  • Ábyrg framleiðsla
  • 100% náttúrulegt
  • Handunnið í Skotlandi
  • Ekki prófað á dýrum
  • Endurnýtanlegar umbúðir

Innihald og virkni

Óhreinsað lífrænt jómfrúar shea smjör vegna þeirra eiginleika að veita húðinni lúxus næringu ásamt raka þar sem það inniheldur mikið magn af náttúrulegum vítamínum og fitusýrum sem eru góðar og endurnærandi fyrir þreytta húð.
Kókosolía síast inn um svitaholurnar og veitir þannig djúpan raka. Laurínsýran sem er í kókosolíunni hefur virka bakteríudrepandi eiginleika sem hjálpa til við að bæta náttúrulegan ljóma húðarinnar.
Upprunavottuð lífræn pálmaolía fyrir náttúrulega uppsprettu A,C og E vítamína ásamt beta keratin sem er öflugt andoxunarefni og drepur sindurefni sem leitt geta til ótímabærrar öldrunar með því að eyðileggja húðfrumur.
Bývax til verndar ysta lagi húðarinnar sem verndar okkur fyrir skaðlegum umhverfisáhrifum. Það dregur einnig úr þurrki með því að halda rakanum í húðinni.
Ilmkjarnaolía úr sætum appelsínum hefur þá eiginleika að vera bólgueyðandi og sótthreinsandi.
Ilmkjarnaolía úr lime inniheldur mikið magn af limonene, náttúrulegu andoxunarefni sem m.a. hjálpar til við að fjarlægja sindurefni úr húðfrumum og dregur þannig úr öldrunarmerkjum eins og sólblettum, fínum línum og hrukkum, Hjálpar jafnframt til við að styrkja húðina.
Sítrónugras ilmkjarnaolía getur hjálpað til við að styrkja húðina, draga úr ertingu og inniheldur náttúruleg andoxunarefni sem veita vörn

Innihald ilmkjarnaolía:
* Limonene, Linalool, Citral

Innihald: 100 ml

Notkun
Eftir góða dekurstund í baði, gefðu þér smástund til viðbótar til að bera á þig mjúkt og kremkennt St. Clement´s líkamssmjörið. Berðu smjörið mjúklega á þig og byrjaðu á þeim stöðum sem þarfnast mestrar athygli. Berðu svo á restina af kroppnum með mjúkum strokum.

Sjá allar upplýsingar