Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Squalane olía (úr ólífum) 25 ml - Amphora Aromatics

Squalane olía (úr ólífum) 25 ml - Amphora Aromatics

Verð 2,044 kr
Verð 2,555 kr Söluverð 2,044 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Squalane er náttúrulegt fituefni sem unnið er úr ólífum og líkt og náttúruleg fita húðarinnar getur squalane veitt vörn gegn rakatapi og hjálpar til við að læsa raka inni i húðinni án þess að stífla svitaholurnar.

Squalane olían er létt og lyktarlaus og skilur ekki eftir sig bletti, hentar öllum húðgerðum þar sem að hún jafnar náttúrulega fituframleiðslu en er sérstaklega góð fyrir viðkvæma og þurra húð. Olían sogast hratt inn í húðina, getur dregið úr sýnileika fínna lína og hjálpar til við að halda húðinni mjúkri.

Notkun: 

Andlit - berið á hreina húð, annað hvort eitt sér eða undir rakakrem.

Hárið - berið í hárendana einu sinni í viku til að veita aukinn raka.

Ef nota á squalane olíuna með öðrum húðvörum til að auka næringu og raka þá er best að blanda því saman í lófanum jafnóðum því að squalane getur dregið úr geymsluþoli ef henni er blandað saman við annað fyrirfram.

25 ml.

Framleitt og pakkað í Bretlandi í glerflösku með pípettu.

Sjá allar upplýsingar