Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Spearmint ilmkjarnaolía, 10 ml

Spearmint ilmkjarnaolía, 10 ml

Verð 1.730 kr
Verð 0 kr Söluverð 1.730 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Spearmint (Mentha spicata).

Þessi olía er mildari og sætari valkostur en piparmyntan en hefur marga svipaða eiginleika. Hún getur hjálpað við höfuðverk og ógleði, slegið á kvefeinkenni og bætt meltinguna. Hún er hressandi, kælandi og upplífgandi og margir þola hana betur en piparmyntuna. Spearmint hentar líka börnum betur en piparmyntan. Gott er að blanda spearmint í grunnolíu eða krem og bera á þreytta fætur.

Olían er unnin með útdrætti úr þurrkuðum laufum og stilkum og er aðallega hátóna.
Spearmint blandast vel með rósmarín, eucalyptus, sítrónu, basil og lavender.

Notkun:
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af Ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun iIlmkjarnaolía er best að leita til Ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Kína.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)

Sjá allar upplýsingar