Skilningur. Íslenskir Blómadropar Kristbjargar. Vitund 1. 10 ml.
Skilningur. Íslenskir Blómadropar Kristbjargar. Vitund 1. 10 ml.
Þessi blanda kemur jafnvægi á höfuðstöðina, eflir hugarró, gefur skýrleika í hugann og dýpri skilning. Hún getur hjálpað okkur að öðlast frelsi frá hamlandi hugsunum og hugmyndakerfum sem hindra okkur í þroska og vexti. Blönduna er gott að taka inn til að efla og styrkja taugakerfið og er góð við einbeitingarskorti, síhugsunum og ofurviðkvæmni fyrir umhverfinu.
Líkamlega getur blandan haft áhrif á höfuðleðrið og hársekkina, efri hluta heilans og heilaköngul.
Innihald:
Lífrænt koníak (40% vol.), 100 hlutar á móti 300 hlutum blómavatns hlöðnu tíðni gleym-mér-ei, klóelftingar, loðvíðis og tágamuru.
Notkun:
Setjið 3 dropa undir tungu 4-8 sinnum á dag. Einnig má setja 21 dropa í 30 ml flösku og fylla upp með vatni. Úr þeirri flösku eru svo teknir 14 dropar í vatnsglas tvisvar á dag.
Umbúðir: Glerflaska og dropateljari.
Framleitt á Íslandi af Kristbjörgu Elí ehf.