Sítrónupressa
Sítrónupressa
Svona sítrónu pressa er staðalbúnaður víða í suður Ameríku þar sem oft þarf að svala þorstanum með einhverju góðu. Þægileg í notkun og nær safanum auðveldlega úr sítrus ávextinum sem þú ætlar að nota safan úr annað hvort í girnilegan drykk eða sósu.
Notkun: Skerðu sítrusávöxtinn í helming og settu hann í pressuna með sárið niður og börkinn upp. Þegar þú lokar og pressar á safinn úr ávextinum greiða leið út um götin. Með þessu móti nærðu öllum safanum úr ávextinum á auðveldan hátt með léttum þrýsting. Gott getur verið að taka handföngin í sundur í nokkur skipti á meðan safinn er kreistur úr.
Efni: Ryðfrítt stál samþykkt fyrir matvæli og húðað með sinkblöndu til varnar tæringu af völdum sýrunnar í ávextinum.
Stærð: 22 x 7 x 4,5 cm.
Umhirða: Skolið í köldu vatni og þurrkið. Má fara í uppþvottavél,
Framleitt í Kína
FSC umbúðir