Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 2

Amphora Aromatics

Sítrónu ilmkjarnaolía frá Kína 10 ml. Lífræn Amphora Aromatics

Sítrónu ilmkjarnaolía frá Kína 10 ml. Lífræn Amphora Aromatics

Verð 1.520 kr
Verð 0 kr Söluverð 1.520 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Sítróna  (Lemon-Citrus limon)

Sítrónu ilmkjarnaolía er rík af A, B og C vítamínum og inniheldur u.þ.b. 70% Limonene, hún getur því bæði hjálpað ónæmiskerfinu, er góð til að hreinsa lifrina og getur hjálpað til við að hreinsa húðina. Hún er sótthreinsandi, bakteríudrepandi og getur verið gagnleg á vörtur og eins á bit eftir skordýr.

Olían er unnin með kaldpressuð úr berkinum  og tónninn er hátónn.

Sítrónu ilmkjarnaolía blandast vel með Lavender, Rós, Sandalviði, Benzoin, Eucalyptus, Geranium, Fennel, Einiber og Nerolí.

Sítrónutréð er talið eiga uppruna sinn á Indlandi og komið til Ítalíu í lok 5.aldar.  Sítrónutré vaxa nú víða um veröld en þessi olía á uppruna sinn að rekja til Sikileyjar.  Sítrónur voru notaðar til að lækna skyrbjúg á enskum skipum og einnig notaðar í baráttunni við malaríu og taugaveiki á Spáni á miðöldum

Notkun

Sítrónu ilmkjarnaolíu má nota á ýmsa vegu, t.d. má setja 20-25 dropa í 100 ml eimað vatn, setja í spreybrúsa og nota til að þrífa yfirborðs fleti t.d. í eldhúsinu. Það má líka blanda henni út í andlitskremið eða aðrar húðvörur (byrja á 1 dropa og auka svo við) og setja hana út í sjampóið. Gott er að setja nokkra dropa í ilmolíu dreifara til að losna við vonda lykt og einnig er gott að hafa hana stöðugt í ilmolíu dreifara þegar kvef og flensu tíminn er í hámarki. Það má líka setja nokkra dropa í vatn og drekka til að örva afeitrunar ferli líkamans. Svo er gott fyrir námsmenn að nota Sítrónu og rósmarín olíu saman í innöndun til að örva minnið og halda einbeitingu.t.d. í prófalestri.
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af Ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð

Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu.  Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki.  Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar. 

Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun iIlmkjarnaolía er best að leita til Ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Ítalía

Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa. 

Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association

 

Sjá allar upplýsingar