Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 3

Share Iceland

ShareOriginal®7er mini - 7 stk

ShareOriginal®7er mini - 7 stk

Verð 4.215 kr
Verð 0 kr Söluverð 4.215 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Japönsk aprikósa (græn plóma), gerjuð í minnst 30 mánuði.

Ert þú í vandræðum með meltinguna? Með ShareOriginal geturðu komið jafnvægi á þarmaflóruna, hreinsað ristilinn og þar með hreinsað eiturefni úr líkamanum. Mörg heilsufarsvandamál bæði andleg og líkamleg tengjast ristlinum. Þar er t.d. um 70% af ónæmiskerfinu okkar og í ristlinum fer einnig fram 90% af upptöku serotóníns í líkamanum sem skiptir miklu máli fyrir geðheilsuna.  Það er því mjög mikilvægt að halda ristlinum hreinum og þarmaflórunni í góðu jafnvægi. 
Gerjuðu ávextirnir frá Share innihalda bakteríur, ensím og góðgerla sem eru mikilvægir fyrir þarmaflóruna og miða að því að hreinsa gömul óhreinindi úr ristlinum og koma á jafnvægi.

Share Original er japönsk apríkósa sem er handtínd af bændum á svæðum í Japan, ávöxturinn er svo settur í viðartunnur og látinn gerjast í 30 mánuði, að lokum er svo ávextinum velt uppúr jurtablöndu sem að inniheldur gulrótasafa, rauðbeður, aloe vera, trönuber og aðrar jurtir.

Notkun: 

Mælt er með að byrja á 1/2-1 Apríkósu á dag. Þú finnur hvað þinn líkami þarf í framhaldinu og getur þá aukið skammtinn eða minnkað ef þörf er á.  Hlustaðu á þinn líkama. Mikilvægt er að drekka ca 500 ml af volgu vatni (38°C) með ávextinum.

Innihald:
Gerjaðar grænar plómur - (Japönsk apríkósa). Jurtahúðun 2,5% (mórber, maté lauf, tubular cassea, goji ber, trönuber, hafþyrnisber, gulróta extrakt) Ræktað og gerjað í minnst 30 mánuði.
Share Orginal apríkósan kemur beint af trénu og er með kjarna í miðjum ávextinum sem ekki er mælt með að kyngja. Án viðbætts sykurs, Share Original inniheldur einungis náttúrulegan sykur úr ávöxtunum sjálfum.

Næringargildi í 100 gr.
Orka 1197/282 kcal
Fita 0,5g
Kolvetni 66gr
Sykur 55g
Trefjar 7,4g
Protein 1,2g
Salt 1,8g

100% Náttúruleg vara og hentar fyrir vegan.

Innri umbúðir eru úr 100% sykurreyr.
Pappaaskja úr endurunnum pappa.
Framleitt í Sviss.

Gerjun er alda gömul geymsluaðferð. Gerjuð matvæli eru rík af probiotic bakteríum, sem eru þær bakteríur sem eru nauðsynlegar fyrir jafnvægi í þarmaflórunni.

Sjá allar upplýsingar