Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Sandalviðar ilmkjarnaolía 10 ml.

Sandalviðar ilmkjarnaolía 10 ml.

Verð 12.905 kr
Verð Söluverð 12.905 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Sandalviður  (Sandalwood -Santalum spicatum)

Aðalvirkni sandalviðarolíu er sú að hún er hvort tveggja í senn slakandi og streitulosandi. Eins róar hún og kemur jafnvægi á bæði taugakerfi og húð ásamt því að næra húðina. Getur haft góð áhrif á unglingabólur vegna sótthreinsandi og bólgueyðandi eiginleika. Getur einnig dregið úr kláða í húð. 

Olían er unnin með gufueimingu og tónninn er grunntónn.

Sandalviður blandast vel með bergamot, svörtum pipar, geranium, lavender, myrru, rós, vetiver og Ylang ylang. 

Sandalwood hefur verið notuð í þúsundir ára bæði í Ayurvedískum lækningum og eins meðal frumbyggja Ástralíu. Santalum spicatum er náskylt Santalum album sem vex á Indlandi og inniheldur hátt hlutfall af ilmefnasamböndum.

Notkun

Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. Einnig má setja 1-2 dropa í lófana, nudda lófunum saman og anda olíunni þannig beint að sér til að róa taugakerfið. Sandalvið má líka blanda í grunnolíu til að nota í líkamsnudd eða út í baðið fyrir róandi og nærandi upplifun. Góð þumalputtaregla er að setja 20 dropa af Ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu. Tilvalið er að bæta nokkrum dropum af Sandalvið út í andlitskremið fyrir aukna næringu og jafnvægi í húðina. 

Varúð

Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu.  Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki.  Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar. 

Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun iIlmkjarnaolía er best að leita til Ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Ástralía

Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa. 

Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association

 

Sjá allar upplýsingar