Saga Natura
Saga Vita 100 ml. Angelica jurtaveig
Saga Vita 100 ml. Angelica jurtaveig
Því miður ekki til á lager
Saga Vita jurtaveigin hefur styrkjandi áhrif á ónæmiskerfið og hentar því mjög vel til að fyrirbyggja kvef og umgangspestir. Hún getur einnig hjálpað þeim sem eru að jafna sig eftir veikindi og gefur aukinn kraft og framtakssemi.
SagaVita er unnin úr lífrænni hvönn frá Hrísey og inniheldur 45% vínanda sem leysir virk efni úr jurtinni og varðveitir þau án aukaefna.
Notkun: 1 lítil teskeið (3 ml) á dag. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Athugið: Notist ekki samhliða ljósameðferð eða miklum sólböðum. Getur aukið ljósnæmi húðarinnar.
Geymið þar sem börn ná og sjá ekki til.
Fæðubótarefni eru ætluð sem viðbót og koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og lífsstíl.
Þessi vara er ekki ætluð til að fyrirbyggja, vinna á eða lækna sjúkdóma.
Deila vöru
