Saga Natura
Saga Pro 60 hylki
Saga Pro 60 hylki
Því miður ekki til á lager
Betri svefn - færri ferðir - aukin lífsgæði
Rannsóknir benda til að SagaPro dragi úr tíðni þvagláta hjá þeim sem eru með litla eða minnkaða blöðru. Notendur eru á öllum aldri og endurspegla rúmlega 1% af íslensku þjóðinni sem nota fæðubótarefnið daglega.
SagaPro er íslensk náttúruvara sem inniheldur handtínda íslenska hvönn, en hvönnin á sér aldalanga sögu sem vinsæl heilsujurt í NorðurEvrópu.
Virka efnið í vörunni er unnið úr íslensku ætihvannarlaufi sem vísindamenn Saga Natura hafa rannsakað í yfir 25 ár. Rannsóknir þeirra sýna að laufblöð plöntunnar innihalda sértæk efni sem styðja vel við eðlilega blöðrustarfsem og stuðla að færri salernisferðum. Notkun á SagaPro getur því stuðlað að samfelldari svefni og því auknum lífsgæðum.
Innihald: Hrísgrjónamjöl, SagaPro® hvannarlaufaextrakt, bambus extract, magnesium sterat, hylki úr jurtabeðmi (HPMC).
Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 1-2 hylki á dag, yfir daginn eða fyrir svefn eftir þörfum. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Eitt hylki inniheldur: SagaPro®: 100 mg Mælt er með að taka 2 hylki fyrstu þrjá dagana þegar byrjað er að nota SagaPro.
Þess má geta að varan hefur engar aukaverkanir.
Geymið þar sem börn ná og sjá ekki til.
Fæðubótarefni eru ætluð sem viðbót og koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og lífsstíl.
Þessi vara er ekki ætluð til að fyrirbyggja, vinna á eða lækna sjúkdóma.
Deila vöru
