Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Appelsínu ilmkjarnaolía sæt lífræn, 10ml - Amphora Aromatics

Appelsínu ilmkjarnaolía sæt lífræn, 10ml - Amphora Aromatics

Verð 1.730 kr
Verð 0 kr Söluverð 1.730 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Appelsínu ilmkjarnaolía - sweet orange (Citrus aurantium dulcis).

Þessi olía hefur yndislegan og ferskan ilm sem gefur gleði í hjartað. Hún er hvoru tveggja í senn, upplífgandi og róandi.

Appelsínu olían getur hjálpað við verkjum og bólgum í líkamanum, getur hjálpað til við að róa magann og hægt er að setja hana út í andlitskrem fyrir bæði þreytta og blandaða húð til að gefa ljóma og jafnvægi í húðina. Appelsínuolían er mjög góð til að róa börn niður fyrir svefninn og eins fyrir fullorðna sem eiga erfitt með að slaka á eða eru að upplifa órólegan svefn.  Einnig má nota þessa olíu út í mat og drykki þar sem að hún er lífræn, blanda í olíu í baðið eða nota í heimatilbúin hreinsiefni.

Olían er unnin með gufueimingu úr berki appelsínunnar og tónn olíunnar er mið - hátóna.

Sæt appelsínuolía blandast sérstaklega vel með lavender, neroli, clary sage, salvíu og myrru að ógleymdri hinni klassísku blöndu, appelsína, kanill og negull til að skapa notalegt andrúmsloft í kringum jólin.

Notkun:
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. 
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu.  Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki.  Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar. 
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun  ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Brasilía.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)

Sjá allar upplýsingar