Amphora Aromatics
Rose Geranium ilmkjarnaolía, 10 ml - Amphora Aromatics
Rose Geranium ilmkjarnaolía, 10 ml - Amphora Aromatics
Því miður ekki til á lager
Rose geranium (Pelargonium Roseum)
Jafnvægisstillandi, nærandi og upplífgandi ilmkjarnaolía.
Rose geranium (Pelargonium Roseum) er af sömu ætt og Geranium (Pelargonium Graveolens) og er þessum tveimur olíum gjarnan ruglað saman enda er virknin mjög svipuð en Rose geranium hefur mildari og meiri blómailm. Hún getur gagnast gegn bakteríum, veirum og sveppum, bæði innvortis og útvortis, getur styrkt ónæmiskerfið og er bólgueyðandi. Innöndun á Rose geranium getur dregið úr kvíða og þunglyndi og stuðlað að slökun. Þessi olía er vinsæl í húð- og snyrtivörur út af bæði virkni og ilm, kemur jafnvægi á feita húð og nærir þurra húð og má nota í hárolíu til að fá aukinn ljóma í hárið.
Unnin með gufueimingu úr blómum, stöngli og laufum plöntunnar og er mið- hátóna.
Notkun:
Hægt að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. Einnig má setja dropa af olíunni í lófann og anda að sér ilminum til að róa hug og hjarta eða til að lyfta sálinni upp.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.
Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)
Deila vöru
