Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Viridian

Regnbogasilungsolía í hylkjum, 90 hylki - Viridian

Regnbogasilungsolía í hylkjum, 90 hylki - Viridian

Verð 5,480 kr
Verð Söluverð 5,480 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn
Viridian Lífræn Regnbogasilungsolía (90 hylki)
Fyrsta vottuð lífræna fiskolían í veröldinni í mjúkum hylkjum
Regnbogasilungsolían frá Viridian setur ný viðmið þegar kemur að umhverfislegri sjálfbærni, hreinleika og gæðum. Olían er unnin úr dönsku lífrænu landeldi þar sem fiskurinn er kaldpressaður innan við klukkustund frá veiði. Þetta einstaka ferli tryggir að olían helst hámarks fersk og laus við oxun. Framleiðslan er 100% rekjanleg, samfélagslega ábyrg og skilur eftir sig lágmarkskolefnisspor þar sem engin sóun á sér stað við vinnsluna.
Eiginleikar og virkni:
  • Hjarta, heili og sjón: Olían er náttúrulega rík af lífsnauðsynlegum Omega-3 fitusýrum. EPA og DHA stuðla að eðlilegri starfsemi hjartans og DHA á þátt í að viðhalda eðlilegri starfsemi heilans og eðlilegri sjón.*
  • Hreinleiki og gæði: Þar sem silungurinn vex í lokuðu og vottuðu lífrænu umhvervi er vatnið fyllilega laust við umhverfiseitrun og þungmálma. Það skilar sér í óvenju hreinni og bragðgóðri olíu sem hér kemur í mjúkum hylkjum úr fiskigelatíni.
  • Náttúruleg andoxun: Olían er varðveitt með lífrænni sítrónu-, appelsínu- og rósmarínolíu sem virkar sem náttúrulegt andoxunarefni og gefur ferskt og ljúft bragð.
    *Náist við daglega neyslu á 250 mg af EPA og DHA.
Innihald í tveimur hylkjum:
  • Lífræn skandinavísk regnbogasilungsolía (Oncorhynchus mykiss): 97,5%
  • Lífræn sítrónu- & appelsínuolía og lífrænn rósmarínkraftur: 2,5%
  • Fitusýruprófíll í 2 hylkjum:
    • Omega-3 (Alls): 432 mg (þar af DHA: 200 mg, EPA: 70 mg, DPA: 24 mg, ALA: 68 mg)
    • Omega-6 (Alls): 336 mg (þar af Línólínsýra: 290 mg, GLA: 5 mg)
    • Omega-7 (Alls): 155 mg
    • Omega-9 (Alls): 768 mg
Önnur innihaldsefni (hylki):
Mjúk hylki úr fiskigelatíni og grænmetisglyceróli.
Notkun:
Sem fæðubótarefni fyrir fullorðna, takið 2 hylki daglega með mat. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Hver krukka inniheldur 90 hylki (45 skammta).
Nánari upplýsingar:
  • Sérstaða: Lífrænt vottuð, 100% virk innihaldsefni, laust við erfðabreytt efni (non-GM), glúten og gerviefni. Engar dýraprófanir.
  • Umbúðir: Glerkrukka með álloki og pappaaskja.
  • Geymsla: Geymið á þurrum og svölum stað. Geymið þar sem börn ná og sjá ekki til.
  • Framleitt í: Bretlandi (unnið í Danmörku).
Fæðubótarefni eru ætluð sem viðbót og koma ekki í staðinn fyrir pfjölbreytt mataræði og lífsstíl. Þessi vara er ekki ætluð til að fyrirbyggja, vinna á eða lækna sjúkdóma.
Athugið: Vegna strangra reglugerða ESB og íslenskra matvælalaga er bannað að birta læknisfræðilegar greiningar, fullyrða um virkni gegn sjúkdómum eða vísa til lækninga í vörulýsingum okkar. Textarnir lýsa því fyrst og fremst sögu og almennri vellíðan.

 

Sjá allar upplýsingar