Mercola
Rauðrófuduft gerjað, 150g. - Mercola
Rauðrófuduft gerjað, 150g. - Mercola
Því miður ekki til á lager
Gerjað lífrænt rauðrófuduft, frábært að taka fyrir æfingar, á morgnana eða út í þeytinginn til að auka næringargildi og gefa kraft. Rauðrófur eru gríðarlega næringarríkar og eru þekktar fyrir að auka orku og úthald. Gerjunin gerir rauðrófurnar sykurlausar og eykur hollustu þeirra. Náttúruleg uppspretta nítríð oxíð (tvöfalt meira magn myndast við gerjunina) sem eykur blóðflæði og getur þannig aukið úthald og styrk við æfingar. Styður við afeitrunarferli lifrarinnar. Rauðrófur eru einstaklega járnríkar og gagnast því vel við blóðleysi. Við gerjunina verða til vinveittar örverur sem hjálpa þér að nýta næringuna enn betur. Rauðrófur eru mjög næringarríkar og innihalda auk járns m.a. fólat, c vítamín, mangan og kalíum. Rauðrófur eru mjög andoxunarríkar og verja þannig frumur líkamans fyrir skemmdum.
Ráðlögð notkun: Takið eina mæliskeið (fylgir) út í vatn eða annan kaldan vökva. Má bæta út í þeytinga. Gott að blanda í blandara, hristibrúsa eða krukku til þess að duftið blandist vel. Gott að taka fyrir æfingar - getur aukið blóðflæði og þar með úthald og styrk. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Umbúðir: Endurlokanlegur plastpoki.
Framleitt í Bandaríkjum.
Geymið þar sem börn ná og sjá ekki til.
Fæðubótarefni eru ætluð sem viðbót og koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og lífsstíl.
Þessi vara er ekki ætluð til að fyrirbyggja, vinna á eða lækna sjúkdóma.
Deila vöru
