Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 3

Napiers

Rakagefandi augndropar með augnfró, 30 ml - Napiers

Rakagefandi augndropar með augnfró, 30 ml - Napiers

Verð 3.290 kr
Verð 0 kr Söluverð 3.290 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn
Rakagefandi augndroparnir frá Napiers eru einstaklega mild og náttúruleg formúla hönnuð til að fríska upp á þurr og þreytt augu. Droparnir innihalda meða annars augnfró, hýaluron súru og MSM og má nota hvenær sem er dagsins þegar þreyta eða þurrkur segir til sín.

Eiginleikar og virkni:
  • Djúpur raki og ferskleiki: Samsetningin af hýalúronsýru og MSM (methylsulfonylmethane) veitir augunum samstundis ríkulegan raka og svala. Droparnir eru kjörnir til að vinna gegn þurrki og óþægindum sem myndast oft vegna þurrs innilofts, loftkælingar eða vinnu við skjá.
  • Hefðbundin augnfró í nýju ljósi: Augnfró (Eyebright) á sér alda gamla sögu í evrópskum jurtalækningum og apótekara menningu, þar sem hún hefur ávallt verið hátt skrifuð jurt til umhirðu og hvíldar fyrir augun.
  • Vörn gegn stafrænu álagi: Droparnir eru mildir, svíða ekki og eru algjörlega alkóhólfríir. Þeir henta einstaklega vel fyrir þá sem eyða löngum stundum fyrir framan tölvuskjái, við lestur eða akstur og finna fyrir þreytu í augunum.
  • Hreinleiki og gæði: Formúlan inniheldur hágæða silfurvatn (colloidal silver) og Sodium Ascorbyl Phosphate sem er ákveðið form af C-vítamíni.  
Innihaldsefni:
MSM (Methylsulfonylmethane), Sodium Ascorbyl Phosphate (form af C-vítamíni), Hýalúronsýra (Hyaluronic Acid), Sítrónusýra (Citric Acid), silfurvatn (Silver / Cl 77820), Maltódextrín og Augnfró (Euphrasia Officinalis / Eyebright). 

Notkun:
Setjið tvo til þrjá dropa beint í hvort auga hvenær sem þörf krefur yfir daginn. Gætið þess að loka flöskunni rækilega eftir hverja notkun til að tryggja hreinleika. Má nota daglega allt árið um kring.

Nánari upplýsingar:
  • Sérstaða: 100% náttúruleg virk innihaldsefni, alkóhólfrítt, svíður ekki og hentar til reglulegrar daglegrar notkunar. 
  • Umbúðir: Vönduð glerflaska með dropateljara.
  • Geymsla: Geymið á þurrum og svölum stað, fjarri beinu sólarljósi. Geymið þar sem börn ná ekki til.
  • Framleitt í: Skotlandi.
Varan er ætluð sem stuðningur við almenna vellíðan og rakagjöf augna. Notið ekki vöruna ef innsiglið er rofið eða umbúðirnar skemmdar.

Varúð: Notið ekki vöruna ef þú ert með þekkt ofnæmi fyrir einhverju af innihaldsefnunum. Ef vart verður við ertingu eða óþægindi skal hætta notkun og ráðfæra sig við lækni. Ráðfærðu þig við grasalækni eða heilbrigðisstarfsmann fyrir notkun ef þú ert þunguð eða með barn á brjósti.

Athugið: Vegna strangra reglugerða ESB og íslenskra laga er bannað að birta læknisfræðilegar greiningar, fullyrða um virkni gegn sjúkdómum eða vísa til lækninga í vörulýsingum okkar. Textarnir lýsa því fyrst og fremst sögu og almennri vellíðan.
Sjá allar upplýsingar