Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Pestemal

Pestemal Paradise handklæði, blátt

Pestemal Paradise handklæði, blátt

Verð 4,690 kr
Verð 0 kr Söluverð 4,690 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn
Röndóttur draumur

Þetta flatofna handklæði er gert úr 100% náttúrulegri bómull, þornar einstaklega hratt, dregur í sig meiri vökva og tekur mun minna pláss en hefðbundin handklæði. Vönduð hönnunin og fljótþornandi efnið gera það fullkomið fyrir ströndina, sundferðirnar eða dekurstundir í heilsulindinni.

Stærð: 100x190 cm
Þyngd: 370 grömm (0.81 lbs)
Efni: 100% náttúruleg tyrknesk bómull
Fallegir kögraðir kantar

Þvottaleiðbeiningar
Hiti: Best er að þvo við 30-40°C á viðkvæmri stillingu
Ekki er mælt með að nota mýkingarefni þar sem það minnkar rakadrægnina
Þurrkun: Best er að hengja upp á snúru (þornar á svipstundu) eða nota mjög lágan hita í þurrkara
Mýkt: Handklæðið verður mýkra og rakadrægara með hverjum einasta þvotti

Fróðleiksmoli: Hvað er flatofið hammam handklæði?
Hammam handklæði eiga sér ríka sögu og voru upprunalega hönnuð fyrir hin hefðbundnu tyrknesku baðhús (hammam). Þau eru ofin alveg flöt og jöfn í stað þess að nota hefðbundnar handklæðalykkjur. Þessi tækni gerir það að verkum að handklæðið er fislétt og tekur sáralítið pláss í töskunni eða skápnum. Þar sem vefnaðurinn er flatur hrindir hann náttúrulega frá sér sandi, sem gerir það að fullkomnu strandhandklæði, auk þess sem það dregur einstaklega vel í sig vökva og þornar mun hraðar en venjuleg handklæði.

Umbúðir: engar
Framleitt í Tyrklandi
Sjá allar upplýsingar