Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 2

Amphora Aromatics

Óreganó ilmkjarnaolía 10 ml. Lífræn Amphora Aromatics

Óreganó ilmkjarnaolía 10 ml. Lífræn Amphora Aromatics

Verð 3.195 kr
Verð 0 kr Söluverð 3.195 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Óreganó   (Oregano - Origanum Vulgare)

 Löng hefð er fyrir notkun Óreganó fyrir vandamál tengd meltingu, öndunarfærum (s.s.astma, bronkítis og hósta), flensu og hálsbólgu. Olían er einnig rík af andoxunarefnum og er sveppadrepandi.

Olían er unnin með gufueimingu úr laufunum  og tónninn er miðtónn.

Óreganó ilmkjarnaolía blandast vel með Lavender, Furu, Kamfóru, Sedrusvið, Rósmarín og Sítrónugrasi.

Óreganó á uppruna sinn að rekja til Evrópu en er núna ræktað víða um heim, m.a. í Bandaríkjunum, Indlandi og Suður Ameríku.

Notkun

Við sveppasýkingu í meltingarvegi má setja 5 dropa af Óreganó olíunni í skeið af hreinni ólífuolíu og taka inn þrisvar á dag. Einnig má blanda nokkrum dropum í morgunfrúarsmyrsli og bera á húð ef grunur er um sveppasýkingu í húð. Við kvefi er gott er að anda að sér olíunni t.d. með því að setja nokkra dropa í skál af heitu vatni, setja handklæði yfir höfuðið og anda að sér gufunni, eða með því að nota ilmolíu dreifara. Hreina lífræna óreganó olíu má einnig nota í matargerð. Óreganó olían getur líka haft góð áhrif á bólgur og verki vegna gigtar og eins má nota hana til að róa krampa og loft í meltingarvegi.
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af Ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð

Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu.  Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki.  Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar. 

Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun iIlmkjarnaolía er best að leita til Ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Indónesía

Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa. 

Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association

 

Sjá allar upplýsingar