Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Niaouli ilmkjarnaolía 10 ml

Niaouli ilmkjarnaolía 10 ml

Verð 1.670 kr
Verð Söluverð 1.670 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Niaouli (Melaleuca viridiflora)

Niaouli ilmkjarnaolían hefur kamfórulíkan ilm og er rík af 1,8 Cineole (eucalyptol) sem gerir það að verkum að hún getur reynst vel við ýmiskonar sýkingum í öndunarfærum, er bólgueyðandi, bakteríudrepandi og sótthreinsandi. Niaouli er ómissandi í skyndihjálparkassa heimilisins yfir vetrarmánuðina þegar kvef og hósti gera vart við sig, hún er náttúrulega hreinsandi og getur hjálpað til við að opna öndunarveginn og létta á stíflum í nefi og kinnholum. Niaouli má einnig nota til að meðhöndla ýmis húðvandamál svo sem unglingabólur, sýkingar, skordýrabit og fleira.

Olían er unnin með gufueimingu úr laufum og greinum og er miðtóna.

Niaouli blandast vel með juniper, lavender, pine og piparmyntu

Notkun:
Hægt að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. Einnig má setja dropa af olíunni í lófann og anda að sér ilminum til að hreinsa út í kinnholurnar eða setja nokkra dropa í gufubað og anda að sér þannig.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Indonesía

Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.

Sjá allar upplýsingar