Mjólkurbrúsaflaska 500 ml. burstað stál
Mjólkurbrúsaflaska 500 ml. burstað stál
Verð
4.580 kr
Verð
0 kr
Söluverð
4.580 kr
Stykkjaverð
/
pr.
500 ml. ferðaflaska með gamaldags mjókurbrúsalagi sem ýmist heldur heitu í allt að 12 tíma eða köldu í allt að sólahring. Tappinn sem er áskrúfaður, er lekaheldur og einnig úr ryðfríu stáli með polypropolyene (PP 5) þéttingu. Aðeins stálið kemst í snertingu við vökvann og hefur ekki áhrif á bragðgæði drykkjarins. Flöskurnar eru framleiddar úr tveimur lögum af ryðfríu stáli og veita mikið viðnám við tæringu og hnjaski.
Smart að taka með hvert sem er.
Um vöruna
- Innra og ytra lag úr stáli 304 (18/8)
- Loft-, og lekaheld – pp þéttir í loki
- Heldur heitu í allt að 12 klst. og köldu í allt að 24 klst.
- Mikið viðnám gegn tæringu
- Innra byrði án allrar húðunar og lakks (ólíkt álíláta)
- Hefur ekki áhrif á bragðgæði
- Stærð: 20,5 cm á hæð x 7,7 cm. þv.
- Þyngd: 300 gr.
- Þvottur: Handþvottur í heitu sápuvatni
- Ábyrg, sjáfbær framleiðsla
- Pökkun: Þunnur kassi
- Framleitt í Kína
Notkunarleiðbeiningar:
- Setjið hvorki í örbylgju- né bakarofn
- Frystið ekki
- Til að forðast leka, passið að skrúfa lokið rétt og þétt á
- Setjið hæfilegt magn í flöskuna eða eins og leiðbeiningar segja til um
- Setjið ekki kolsýrða drykki í flöskuna því þrýstingur getur margfaldast
- Passið að börn leiki sér ekki með flöskuna ef heitir drykkir eru í henni
- Ekki geyma brjóstamjólk í flöskunni
- Geymið flöskun opna á milli notkunar
Umhirða:
- Þvoið alla hlutana með sápuvatni fyrir notkun. Skolið vel og þurrkið
- Fyrir enn ítarlegri þrif mælum við með því að þvo ílátið með þvottabursta, heitu vatni og teskeið af matarsóda
- Ef þurfa þykir, látið liggja í bleyti í nokkra klukkutíma fyrir skolun
- Notið ekki þvottarefni sem innihalda bleikiefni, klór, fægilög (svarfefni) eða/og sterk hreinsiefni
- Við mælum með handþvotti
Tillaga
Til að drykkurinn haldist heitur eins lengi og unnt er, fyllið ílátið með heitu vatni til að verma flöskuna að innan og látið standa í nokkrar mínútur. Tæmið ílátið og fyllið aftur með því sem halda á heitu.