Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

May Chang ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml - Amphora Aromatics

May Chang ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml - Amphora Aromatics

Verð 1.940 kr
Verð Söluverð 1.940 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

May Chang (Litsea Cubeba) 
Sætur sítrusilmur sem gefur jafnvægi og er bæði upplífgandi og róandi.
Getur reynst vel til að meðhöndla óreglulegan hjartslátt, taugaspennu, kvíða, háan blóðþrýsting og önnur streitutengd einkenni s.s. höfuðverk. Hún getur líka stuðlað að dýpri svefni. Gott er að blanda May Chang í grunnolíu og nudda á líkamann eftir áreynslu til að draga úr þreytu í vöðvum. Olían getur líka reynst vel gegn meltingartruflunum og vindgangi.
May Chang getur reynst vel gegn bólum og til að koma jafnvægi á fitustig húðarinnar. Einnig getur hún reynst vel við húðbólgum og gegn mikilli svitamyndun og er því góður kostur út í heimatilbúinn svitalyktareyðir. 
Olían er unnin með gufueimingu úr berjunum og er hátóna.
May chang blandast vel með öðrum sítrus olíum og er mjög vinsæl sem ilmgefandi efni í snyrtivörur.

Notkun:
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Kína.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)

Sjá allar upplýsingar