Amphora Aromatics
Marjoram ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml - Amphora Aromatics
Marjoram ilmkjarnaolía lífræn, 10 ml - Amphora Aromatics
Því miður ekki til á lager
Marjoram/Sweet Marjoram (Origanum majorana)
Marjoram hefur dásamlegan, viðarkenndan og kryddaðan ilm og getur haft róandi áhrif á hugann og taugakerfið. Hún er líka góð í olíublöndur fyrir þreytta vöðva og til að búa líkamann undir góðan og endurnærandi nætursvefn.
Marjoram er dásamleg ein og sér en tónar líka einstaklega vel við Lavender, Rosemary, Eucalyptus og Tea Tree.
Olían er unnin með gufueimingu úr laufum og blómtoppum og er miðtóna.
Notkun:
Hægt að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. Einnig má setja dropa af olíunni í lófann og anda að sér ilminum til að róa hug og hjarta eða til að lyfta sálinni upp.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.
Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.
Uppruni: Egyptaland
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Deila vöru
