Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Jurtaapótek

Maríustakkur te, 70gr.

Maríustakkur te, 70gr.

Verð 1.870 kr
Verð Söluverð 1.870 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Maríustakkur (Alchemilla vulgaris)

Maríustakkur hefur oft verið kölluð kvennajurtin. Hún hefur þá eiginleika að geta komið reglu á blæðingar, minnkað þær ef þær eru of miklar, koma þeim af stað ef þess þarf og er verkjastillandi og krampalosandi. Maríustakkinn má líka nota á svipaðan hátt og hindberjalauf, á síðustu mánuðum meðgöngu og eftir fæðingu til að hjálpa til við að styrkja legvöðvann. Einnig er hægt að gera seyði úr jurtinni og nota sem skol til að minnka útferð og koma í veg fyrir sýkingar í leggöngum. Jurtin getur minnkað vöðvakrampa, stuðlað að minni bólgumyndun, góð fyrir meltinguna, getur haft vökvalosandi áhrif og komið jafnvægi á blóðsykur og er góð við vægum niðurgangi.

Virk efni: M.a. tannín, flavóníðar salisýlsýra og steinefnasölt.

Notkun:
Notið tvær matskeiðar í 2 bolla af soðnu vatni. Látið standa í tíu mínútur, síið og drekkið svo. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Umbúðir: Pappírspoki.
Framleitt af Jurtaapótekinu.

Geymið þar sem börn ná og sjá ekki til.
Fæðubótarefni eru ætluð sem viðbót og koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og lífsstíl.
Þessi vara er ekki ætluð til að fyrirbyggja, vinna á eða lækna sjúkdóma.

Sjá allar upplýsingar