Marley's Monster
Margnota moppuklútar 11x25 cm, 2 stk í pakka
Margnota moppuklútar 11x25 cm, 2 stk í pakka
Því miður ekki til á lager
Loksins er kominn valkostur við einnota moppuklúta sem er plastlaus, margnota og má fara í þvottavélina. Margnota moppuklútarnir frá Marley's Monsters eru gerðir úr þykku og vel rakadrægu efni sem samanstendur af mörgum lögum af afgöngum úr þæfðu bómullarflóneli – efni sem annars hefði endað í ruslinu. Moppuklútinn er hægt að festa á moppuhausinn með einskonar vængjum úr einu lagi af flóneli, sem eru staðsettir meðfram langhlið klútsins. Má nota bæði blauta og þurra!
ATH. þar sem að þessir klútar eru gerðir fyrir minni moppu en gengur og gerist þá mælum við með að nota tvo á moppuhausinn.
Umhirða og þvottur: Má þvo í vél (40°C) og þurrka í þurrkara. Klippið lausa þræði af klútnum eftir þörfum.
Umbúðir: Endurunnið pappaspjald sem má endurvinna aftur.
Handgert í Eugene, Oregon, USA
Deila vöru
