Amphora Aromatics
Manuka ilmkjarnaolía, 10 ml - Amphora Aromatics
Manuka ilmkjarnaolía, 10 ml - Amphora Aromatics
Því miður ekki til á lager
Manuka - Leptospermum scoparium
Manuka er af sömu ætt og Tea tree, ilmkjarnaolían er mildari en hefur engu að síður jafnvel sterkari virkni en Tea tree. Manuka olían getur gagnast við berkjubólgu, flensu, hósta og hálsbólgu. Hún er slímlosandi og sveppadrepandi, getur verið hjálpleg gegn ýmsum sníkjudýrum og lús og ýmsum sýkingum í húð. Hún hefur einnig reynst vel til að róa taugakerfið.
Manuka hentar vel fyrir allar húðgerðir en af því að virknin er mikil þá er gott að byrja frekar með færri dropa og bæta svo við þegar verið er að gera húðblöndur.
Manuka ilmkjarnaolían er unnin með gufueimingu úr laufum og litlum trjágreinum Manuka trésins og er mið- til hátóna.
Manuka blandast vel með mjög mörgum olíum, t.d. bergamot, kamillu, clary sage, eucalyptus, lavender, appelsínu og furu svona til að nefna nokkrar.
Notkun:
Við kvefi er gott að setja manuka olíuna í ilmolíulampann eða setja nokkra dropa í lófann og anda að sér og einnig má setja 1-2 dropa í teskeið af hunangi og taka inn. Við flösu er hægt að setja nokkra dropa í sjampóið, við fótsvepp er gott að blanda saman manuka og tea tree og bera annað hvort beint á sýkta nögl eða blanda saman við salt og setja út í fótabað.
Hægt að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. Einnig má setja dropa af olíunni í lófann og anda að sér ilminum til að róa hug og hjarta.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.
Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.
Uppruni: Nýja Sjáland.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)
Deila vöru
