Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 3

Mistur

Manifestation kerti, soja. Purifying moon. Palo santo og lavender. 120 gr.

Manifestation kerti, soja. Purifying moon. Palo santo og lavender. 120 gr.

Verð 1.990 kr
Verð Söluverð 1.990 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Dásamlegt kerti í fallegu glerglasi fyrir alla sem elska tunglið. 

Tilvalið til að kveikja á undir  nýju tungli þegar verið er að setja sér markmið eða undir fullu tungli þegar farið er í gegnum þakklæti og fyrirgefningu. Kertið er úr blöndu af soja - og pálmavaxi sem er handhellt í fallegt glerglas, inniheldur ilmkjarnaolíur og kristalla. 
Róandi ilmur Palo Santo og lavender setja tóninn við tilbeiðslu tunglsins og hjálpa okkur að aftengjast hinu daglega amstri og tengjast aftur náttúrulegri orku tunglsins og Amethyst tengir okkur við æðri vitund og viskuna innra með okkur.

Um Manifestation kerti
Manifestation kerti getur verið ákveðin leit til að láta óskir þínar rætast. Það táknar eld, frumþátt sem er notaður í helgisiði í ýmsum menningarheimum, en eldurinn er táknrænn fyrir kraftinn til að umbreyta einu í annað. Sem slíkt hefur kertið myndrænan kraft til að endurmóta hugarfar þitt.

Kveikurinn er úr bómull og brennslutími allt að 20 klst.

Til að fá jafna notkun er mælt með að hafa kveikt á kertinu í a.m.k. klukkustund í senn en þó ekki lengur er 4 tíma.
Gott er að snyrta kveikinn niður í u.þ.b hálfan cm áður en kveikt er á kertinu. Hættið notkun á kertinu þegar u.þ.b 1 cm er eftir af vaxinu.

Varúð:
Skiljið kerti aldrei eftir án eftirlits og staðsetjið þau þar sem börn og gæludýr ná ekki til. Hafið kertið á góðu hitaþolnu undirlagi og ekki nálægt gardínum. Varist að færa kertið til meðan vaxið er fljótandi.

Efni: Soja og pálmavax með bómullarkveik
Stærð: 8 x 7 cm.
Þyngd: 120 gr.
Umbúðir: Glerglas og pappa askja.
Upprunaland: Indland.

Sjá allar upplýsingar