Mercola
Magnesium L-Threonate, 90 hylki - Mercola
Magnesium L-Threonate, 90 hylki - Mercola
Því miður ekki til á lager
Magnesíum er lífsnauðsynlegt steinefni sem við fáum oft ekki nóg af úr fæðunni.
Magnesíum hefur mörgum hlutverkum að gegna í líkamanum. Það kemur við sögu í yfir 300 efnahvörfum og því ákaflega mikilvægt til þess að öll líkamskerfi geti starfað rétt. Sem dæmi um hin mörgu hlutverk magnesíum má nefna:
Nauðsynlegt fyrir eðlilega vöðvavirkni – einkum vöðvaslökun
Nauðsynlegt fyrir eðlilega taugavirkni – einkum taugaslökun
Ómissandi þáttur orkuvinnslu í hverri einustu frumu líkamans
Nauðsynlegt fyrir eðlilega starfssemi hjarta og æðakerfis – spilar t.d. mikilvægt hlutverk í að viðhalda eðlilegum blóðþrýstingi
Mjög mikilvægt fyrir beinheilsu – nauðsynlegt til að tryggja eðlilega beinþéttni og endurnýjun beina
Magtein eða magnesíum L-threonate nýtist líkamanum auðveldlega og rannsóknir benda til þess að það eigi greiðari leið upp í heila en önnur form af magnesíum.
Magtein hefur ekki hægðalosandi áhrif og hentar því vel þeim sem eru viðkvæmir í maga.
Ráðlagður skammtur: 3 hylki á dag, gott að taka 2 hylki um miðjan dag og 1 hylki um 2 tímum fyrir svefn.
Umbúðir: Glerkrukka og plastlok.

Deila vöru
