Saga Natura
Magnesium sítrat 60 hylki - Saga Natura
Magnesium sítrat 60 hylki - Saga Natura
Því miður ekki til á lager
Magnesíumsítrat er nauðsynlegt steinefni sem stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga- og vöðvakerfis. Það stuðlar að eðlilegum orkuefnaskiptum, hjálpar til við að draga úr þreytu og sleni, ásamt því að stuðla að eðlilegu viðhaldi beina og tanna.
Magnesíumsítrat hentar sérlega vel fyrir íþróttafólk og þá sem hreyfa sig mikið, þar sem það styður við eðlilega vöðvaslökun og endurheimt eftir álag. Það er einnig frábær viðbót fyrir einstaklinga sem vilja styðja við almenna slökun fyrir svefninn, vinna gegn daglegu álagi og stuðla að eðlilegri starfsemi meltingarvegarins.
Notkun: Takið tvö hylki á dag.
Innihald í tveimur hylkjum:
Magnesíumsítrat: 1300 mg
Hylki úr jurtabeðmi (HPMC)
Þar af hreint magnesíum: 180 mg (48% af næringarviðmiði fyrir fullorðna)
60 hylki
Geymið á köldum og þurrum stað þar sem börn ná ekki til.
Fæðubótarefni eru ætluð sem viðbót og koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og lífsstíl.
Þessi vara er ekki ætluð til að fyrirbyggja, vinna á eða lækna sjúkdóma.
Deila vöru
