Lukkute 25g

Lukkute 25g

Venjulegt verð 1.650 kr

Auk annarra jurta inniheldur þessi sérstaka teblanda jurtina Tulsi, eða holy basil sem gefur teinu skemmtilegan keim. Á Indlandi er Tulsi mikið notað fyrir andlega iðkun. Tulsi er þekkt fyrir getu sína til að slaka á huga og líkama, hjálpar til við að bæta hugleiðslu og andlega iðkun og eru laufin talin færa frið og velmegun í lífinu. Tulsi er líka ein af adaptogen jurtunum sem ætlaðar eru til að jafnvægisstilla líkamann.                                                                                              

Innihald:

Tulsi (Ociumum tenuiflorum)*, rautt basil (Ocimum basilicum pururacens)*, hindberjalauf (Rubus idaeus)*, hjartafró (Melissa officinalis)*, sítrónujárnurt (Aloysia citradora)*, sólhattur (Echinacea purpurea)*, kornblóm (Centaurea cyanus)*, morgunfrú (Calendula officinalis)*.

*úr lífrænni ræktun Bergila.

Notkun: 

Þegar BERGILA jurtate er útbúið þá er best að láta 90* heitt vatnið stand í um mínútu áður en því er hellt yfir jurtirnar.
Fyrir einn bolla þarf eina teskeið af lausum jurtum
Láta standa í 5-8 mín. svo jurtirnar geti dregið í sig vatnið. Ef jurtirnar eru látnar standa lengur í vatninu verður teið bæði bragðmeira, jafnvel beiskt og litur þess sterkari. Ef mögulegt, setjið lok á bollann á meðan á lögun stendur svo að olíurnar í jurtunum gufi ekki upp.

Magn í pakka: 25 gr.

Umbúðir: 

FSC vottaður pappír með 5% hamp trefjum. Filma úr sellulósa sem bæði er endurnýjanleg auðlind og niðurbrjótanleg.

Framleitt á Ítalíu

 



Deila þessari vöru


Meira úr þessum vöruflokki