Mistur
Litla svarta bókin (Mandala) 10x8 cm
Litla svarta bókin (Mandala) 10x8 cm
Því miður ekki til á lager
Hefurðu heyrt talað um litlu svörtu bókina? - þetta er hún.
Glósubók úr Lokta-pappír
Einstök glósubók með kápu úr handgerðum Lokta-pappír og 50 auðum síðum. Bókin er handgerð í Nepal með sjálfbærni og umhverfisvernd að leiðarljósi.
Hvað er Lokta-pappír?
Lokta-pappír er unninn úr berki Daphne-runna (sem nefnist Lokta á nepölsku) en hann vex villtur í Himalajafjöllunum. Börkurinn endurnýjar sig sjálfur á náttúrulegan hátt og má uppskera hann aftur og aftur án þess að skaða runnann sjálfan. Hér er því um afar sjálfbæra og umhverfisvæna vinnsluaðferð að ræða.
Stuðningur við samfélagið
Framleiðsla á Lokta-pappír er forn nepölsk handverkssaga. Í dag er það einkum ólæsar konur í Nepal sem sjá um framleiðsluna, sem veitir þeim dýrmætt tækifæri til sjálfshjálpar og fjárhagslegs sjálfstæðis.
Stærð bókar: 10x8x1 cm.
Umbúðir: Engar
Framleitt í Nepal
Deila vöru
