Mistur
Lignosus 30 x 1,5g - fyrir lungun
Lignosus 30 x 1,5g - fyrir lungun
Því miður ekki til á lager
Hver askja af Lignosus inniheldur 30 dagsskammta í handhægum litlum pokum og má setja innihald pokans beint í munninn eða blanda því út í vatn, safa, te eða kaffi.
Hver dagskammtur er 1,5 g og inniheldur 500 mg af Tiger milk svepp og 1 g af ástaraldin extrakt.
Aðal innihaldsefnið í Lignosus er Tiger milk sveppurinn (Lignosus rhinocerotis) en hann er ætisveppur sem hefur verið notaður í um 400 ár til að styðja við heilbrigði öndunarfæranna.
Hver og einn sveppur vex upp úr hnýði neðanjarðar sem gerir hann einstakan.
Hnýðið er hvítt á litinn og ríkt af (1,3)-(1,6)-Beta-D-glúkani.
Tiger milk sveppurinn kemur úr sömu sveppaætt og Reishi sveppurinn og inniheldur lykil lífvirk efnasambönd sem geta dregið á áhrifaríkan hátt úr öndunarfæraeinkennum eins og hósta, astma, kinn- og ennisholubólgu (skútabólgu), berkjubólgu, kvefi og fleiru og geta líka dregið úr viðbrögðum líkamans við ofnæmisvökum.
Rannsóknir hafa sýnt fram á ýmiskonar mögulega ávinninga þess að taka inn Lignosus, en þar má meðal annars nefna:
Stuðningur við heilbrigða öndun og lungnastarfsemi.
Stuðningur við hreinsun og afeitrun lungnanna.
Getur létt á hósta og stuðlað að minni slímmyndun bæði í lungum og nefi.
Getur hjálpað til við að losa stíflu úr nefi og auka loftflæði.
Náttúrulegur stuðningur fyrir fólk með COPD (langvinna lungnateppu) og astma.
Getur styrkt ónæmiskerfið.
Getur dregið úr ofnæmisviðbrögðum í öndunarvegi.
Getur létt á óþægindum í kinn- og ennisholum og bætt öndun.
Notkunarleiðbeiningar:
Fullorðnir (7 ára og eldri): 1 til 2 pokar á dag.
Börn (2–6 ára): Hálfur poki á dag. Lokið pokanum vel eða setjið í annað ílát og geymið hinn helminginn til næsta dags. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Geymist á köldum og þurrum stað, forðist beint sólarljós.
Innihaldslýsing: Tiger Milk sveppur, ástaraldin extrakt.
Umbúðir: Flokkist sem plast og pappír.
Uppruni: Asía.
Geymið þar sem börn ná og sjá ekki til.
Fæðubótarefni eru ætluð sem viðbót og koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og lífsstíl.
Þessi vara er ekki ætluð til að fyrirbyggja, vinna á eða lækna sjúkdóma.
Deila vöru
