Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 2

Mistur

Lífræn Black seed olía, sérlega sterk, stöðluð 3% - Viridian

Lífræn Black seed olía, sérlega sterk, stöðluð 3% - Viridian

Verð 8.860 kr
Verð 0 kr Söluverð 8.860 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

High Potency Black Seed Oil, eða hin sérlega sterka Black Seed olía frá Virdian er framleidd úr hreinu, kaldpressuðu Nigella sativa fræi og er rík af virkum efnasamböndum. Staðlað 3% týmókínón (TQ) sem er virka sameindin og býr yfir ríkulegum og góðum eiginleikum.
Þetta er öflugasta Black Seed olían og sú sterkasta sem framleidd er.

Black Seed (Nigella sativa) olían kemur jafnvægi á ónæmiskerfið, er rík af andoxunarefnum og þykir mjög gagnleg við hvers konar sýkingum og bólgum.

Black Seed olían frá Viridian er hágæða olía. Hún er unnin í Egyptalandi úr lífrænum fræjum, kaldpressuð og tappað á litaðar flöskur undir nítrógen þrýstingi svo hvorki loft né ljós komist að framleiðslunni. Vert er að geta þess að plöntur úr egypskri ræktun eru í meiri metum en plöntur ræktaðar annarsstaðar en í dag er plantan mest ræktuð á austur Indlandi en hún á uppruna sinn í vestur Asíu. Jurtin verður allt að 40 - 50 cm. há og blómstrar hvítum blómum. Nigella satvia er sumstaðar nefnd Blessed seed.

Black seed olían frá Viridian er lífrænt vottuð af Soil Association en lífræn ræktun er betri bæði fyrir menn og jörð. Lífrænir staðlar sem þessir tryggja að olían er laus við kemísk efni og ekki úðuð með skordýraeitri. Lífræn ræktun vinnur með jörðinni, ekki gegn henni.

Viridian tryggir gæðin alla leið og því má vel gera ráð fyrir að þessi olía frá Viridian sé besta sinnar tegundar í heiminum í dag.

Leiðbeiningar:
Takið 0,5 - 1 ml út í mat, drykk eða beint í munninn.

Varúð:  Athugið að olían er blóðþynnandi og því ekki æskileg fyrir fólk á blóðþynningarlyfjum. Hætta ber notkun a.m.k. tveimur vikum fyrir aðgerðir.

Notist ekki á meðgöngu eða með barn á brjósti nema í samráði við lækni.

Magn: 50 ml.

Umbúðir: Glerflaska með pípettu og pappaaskja.

Framleitt í Bretlandi.

 

Sjá allar upplýsingar