Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 2

Amphora Aromatics

Lið- og vöðva roll-on. 10 ml

Lið- og vöðva roll-on. 10 ml

Verð 3.755 kr
Verð Söluverð 3.755 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Lið- og vöðva roll-on.

Einstök blanda af Tea tree, rósmarín, kamfóru og svörtum pipar í sætri möndluolíu. Örvar, hitar og linar verki.  Kemur í handhægri 10 ml flösku sem er tilvalin í vasann, töskuna eða í bakpokann. Frábært roll-on til að nota á auma vöðva og liði, eftir íþróttaiðkun eða hvenær sem þörf er á, t.d. eftir erfiðan dag í garðinum!

Notkun:

Rúllið eftir þörf á aum svæði og nuddið vel inn í húðina. Hentugt til að taka með sér hvert sem er.

Innihald:

Sæt möndluolía (Prunus Amygdalus Dulcis), Tröllatré ilmkjarnaolía (Eucalyptus globulus), Rósmarín ilmkjarnaolía (Rosmarinus officinalis), Kamfóru ilmkjarnaolía (Cinnamomum camphora), Svartur pipar ilmkjarnaolía (Piper nigrum).

Hvað gera innihaldsefnin fyrir þig?

Eucalyptus ilmkjarnaolía:  Bólgueyðandi, linar vöðva- og liðverki, örvar blóðflæði, getur linað gigtarverki.

Rósmarín ilmkjarnaolía: Góð við gigt og vöðvaverkjum Örvar blóðflæðið og er bólgueyðandi.

Kamfóru ilmkjarnaolía:  Góð við liðagigt, tognanir og er almennt bólgueyðandi og verkjastillandi.

Svartur pipar ilmkjarnaolía:  Örvar blóðflæðið. Góð við gigt, vöðvaverkjum og stífleika í vöðvum og liðum.

Varúð:

Geymið þar sem börn ná ekki til. Aðeins ætlað til útvortis notkunar. Ef efnið berst í augu skolið strax vel með volgu vatni og passið að nudda ekki augun.

Framleitt og pakkað í Bretlandi í roll-on glerflösku.


 

Sjá allar upplýsingar