Laxerolía 250 ml. Lífræn Amphora Aromatics
Laxerolía 250 ml. Lífræn Amphora Aromatics
Lífræn laxerolía
Inniheldur: Ricinus Communis. Kaldpressuð laxerolía.
Laxerolían getur losað stíflur bæði innvortis og útvortis og gott er að setja bakstur með olíunni á kviðinn við hægðatregðu, krömpum og verkjum Eins má setja laxerolíu í blöndu til að nudda á stífa og auma liði og vöðva. Laxerolía þykir góð til að næra húð og hár og má nudda á augnhár og augabrúnir fyrir aukinn vöxt og næringu. Einnig getur laxerolía hjálpað til við að lýsa dökka bletti í húð, s.s. lifrarbletti og aldurstengda bletti. Mjög gott er að nota laxerolíu í andlits- og hármaska þar sem að hún heldur rakanum inni.
Lágt tré eða runni sem kemur upprunalega frá Afríku en helstu ræktendur í dag eru Indland, Kína og Brasilía. Olían er kaldpressuð úr baunum af runnanum og var t.d. notuð í Egyptalandi til forna fyrst sem lampaolía og síðar í lækningaskyni og sem fegrunarolía. Kleópatra trúði því að olían myndi gera hvítuna í augunum enn hvítari og hjá Rómverjum var hún m.a. notuð til að vinna á brúnum blettum í húð. Í dag er olían mikið notuð m.a.í framleiðslu á ýmsum matvörutegundum, í snyrtivörur, sápur og sleipiefni.
Varúð:
Geymist þar sem börn ná ekki til. Geymist fjarri sólarljósi.
Uppruni: Indland.
Inniheldur ekki hexane
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.