Jurtaapótek
Lakkrísrót te, 100 gr
Lakkrísrót te, 100 gr
Því miður ekki til á lager
Lakkrísrótin getur haft verndandi áhrif á lifrina og örvað hana til að framleiða meira gall, stuðlað að meira blóðflæði í gegnum lifrina, jafnað starfsemi í brisi og um leið blóðsykurinn. Hún er talin geta örvað og nært nýrnahetturnar, örvað hægðalosun og aukið þol gegn streitu. Lakkrísrótin er talin slímlosandi og getur haft græðandi og bólgueyðandi áhrif á meltingarveg. Þett ar góð jurt til að hjálpa gegn sýkingum í öndunarfærum, lungnakvefi og astma.
Notkun: Sjóðið eina matskeið í 1/4 lítra af vatni í tíu mínútur. Drekkið yfir daginn. Hættið notkun ef vart verður óeðlilegra einkenna. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Varúð: Lakkrísrótin er ekki æskileg fyrir fólk með of háan blóðþrýsting.
Geymið þar sem börn ná og sjá ekki til.
Fæðubótarefni eru ætluð sem viðbót og koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði og lífsstíl.
Þessi vara er ekki ætluð til að fyrirbyggja, vinna á eða lækna sjúkdóma.
Deila vöru
