Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Kardimommu ilmkjarnaolía, 10 ml - Amphora Aromatics

Kardimommu ilmkjarnaolía, 10 ml - Amphora Aromatics

Verð 5.260 kr
Verð Söluverð 5.260 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Kardimommu ilmkjarnaolía (Elettaria cardamomum)

Örvandi og orkugefandi olía sem er sérstaklega góð við andlegri þreytu. 

Kardimommuolía getur einnig virkað róandi á taugakerfið og á magann og má blanda í burðarolíu (eins og t.d. möndluolíu) til að nudda maga og kvið.

Kardimommu ilmkjarnaolía er unnin með gufueimingu úr kardimommu fræbelgjunum og er miðtóna.

Kardimommu ilmkjarnaolía blandast mjög vel með öllum sítrus olíum, rós, negul og sedrusvið.

Notkun:
Til að róa magann má blanda saman 10 dropum af kardimommu olíu og 4 matskeiðum af grunnolíu, til dæmis möndluolíu og nudda maga og kvið mjúklega. Einnig má blanda nokkrum dropum af kardimommu olíu í mjólk  eða olíu og setja út í bað.
Einnig er hægt að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. Einnig má setja dropa af olíunni í lófann og anda að sér ilminum fyrir aukna orku.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíu fræðings.

Uppruni: Indland
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)

Sjá allar upplýsingar