Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Kamilla/Chamomile roman ilmkjarnaolía, 10 ml - Amphora Aromatics

Kamilla/Chamomile roman ilmkjarnaolía, 10 ml - Amphora Aromatics

Verð 8.710 kr
Verð Söluverð 8.710 kr
Tilboð Uppseld í bili - væntanleg
Translation missing: is.products.product.taxes_included
Magn

Kamilla - Chamomile Roman (Anthemis nobilis)

Kamillu ilmkjarnaolía hefur róandi og slakandi áhrif og er því sérstaklega góð til að draga úr spennu og streitu, hvort sem hún er notuð í ilmolíulampa, í nuddolíu eða í baðið. Olían er einnig þekkt fyrir að hafa verndandi áhrif á viðkvæma húð og þurrt hár og þykir góð í hárskol fyrir ljóst hár.
Kamillu ilmkjarnaolían er unnin með gufueimingu úr blómunum og er miðtóna.
Kamillan blandast vel með mörgum olíum en sérstaklega vel með lavender, bergamot, clary sage, geranium og jasmín.

Notkun:
Kamillu ilmkjarnaolíuna má t.d. nota til að gera nuddolíu, hárolíu, baðolíu eða baðsalt en ennig er hægt að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á. Einnig má setja dropa af olíunni í lófann og anda að sér ilminum til að róa hug og hjarta.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Bretland. 
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association

Sjá allar upplýsingar