Skipta yfir í vöruupplýsingar
1 af 1

Amphora Aromatics

Kamfóra ilmkjarnaolía, 10 ml Amphora Aromatics

Kamfóra ilmkjarnaolía, 10 ml Amphora Aromatics

Verð 1.805 kr
Verð Söluverð 1.805 kr
Tilboð Uppselt
Með VSK.

Kamfóra - white camphor (Cinnamomum camphora).
Ilmurinn af kamfóru hefur bæði myntu og viðarkeim, getur róað taugakerfið og dregið úr streitu.
Kamfóra er best þekkt fyrir bakteríudrepandi eiginleika sína og er hún frábær til að létta á hverskonar kvillum í öndunarfærunum.  Gott er að nota olíuna í innöndun annað hvort með því að setja dropa í lófann eða setja nokkra dropa í skál með heitu vatni og anda að sér gufunni. Kamfóra getur létt á lungunum og unnið gegn bronkítis og lungnabólgu og má t.d. blanda henni í olíu og bera á bringu og bak. Hún getur einnig aukið blóðflæðið í líkamanum og styrkt varnir líkamans t.d. gegn vírusum. Kamfóra hefur líka bólgueyðandi eiginleika og getur reynst vel á bólgur og verki í liðum og vöðvum.  Einnig er hægt að nota blöndu af kamfóru og arnicuolíu til að meðhöndla tognun. 
Kamfóru má líka nota á húðina t.d. til að meðhöndla skordýrabit, kláða, útbrot og bólur.
Olían er unnin með gufueimingu og er hátóna.
Kamfóra blandast vel með basil, cajeput, kamillu, lavender og melissu.

Notkun:
Hægt er að setja olíuna í ilmolíubrennara, setja þá 3-5 dropa af olíunni í vatn áður en kveikt er á kertinu undir. Fyrir rafdrifna ilmolíudreifara fylgið leiðbeiningum framleiðanda. Magn olíu sem notuð er fer eftir stærð rýmisins en gott er að byrja á 4-5 dropum og auka svo við ef þörf er á.
Fyrir blöndun á líkamsolíu þá er góð þumalputtaregla að setja 20 dropa af ilmkjarnaolíu út í 100 ml af grunnolíu.

Varúð:
Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu. Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar.
Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun ilmkjarnaolía er best að leita til ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Kína.
Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa.
Vottað eftir IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)

Sjá allar upplýsingar